6.1.2007 | 13:49
Samloka kosningastjóri!
Það er orðið klárt. Gunnar "samloka" Sigurðsson er nýráðinn kosningastjóri Samfylkingarinnar í Norðvestur kjördæmi. Þetta er sjálfsagt í fyrsta sinn sem samloka er kostningastjóri. Gunnar er gæðablóð sem eitt sinn átti heima á Snæfellsnesi, þó svo að hann sé Kópavogsbúi fyrir mér. Hann vill þó meina að hann sé að einhverjum hluta Ólsari enda hefur sést til hans í keppnistreyju Víkings Ólafsvík, sem að ég held að sé frá 1979. Ekki nóg með að Gunnar sé sniðugur þá var hann var einmitt einn af strákunum í samnefndum þáttum. Þá er Gunnar einnig stjórnmálafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur að auki verið í Meistaranámi í Opinberri stjórnsýslu við HÍ undanfarin ár. Vonum nú að lokan standi sig og klúðri ekki öllu fyrir þá fylkingarmenn í Norðvestri. Ekki það að ég óski þeim alls góðs. Ég óska hins vegar Gunnari til hamingju með þetta og vona að standi sig vel í nýju starfi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.1.2007 | 01:58
Saddam
Nú er Saddam dauður. Er það gott eða slæmt? Veit það ekki. Þessi maður var að sjálfsögðu glæpamaður af verstu gerð. Þjóðernishreinsanir sem og fleiri skelfilegir hlutir gerði þennan mann að því sem við sjáum hann í dag.
En átti að drepa hann? Sérstaklega með tilliti til þess að það átti eftir að rétta yfir honum vegna fleiri mála. Hefði ekki átt að senda kauða til Aðþjóðadómstólsins? Hefði ekki átt að bíða með snöruna? Hefði ekki átt að láta hann sitja í fangelsi til dauðadags og sýna þannig miskun? eithvað sem hann gerði ekki og þannig sýna íbúum hins nýja ríki Íraks að miskun sé það sem koma skal.
Pæling!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.1.2007 | 01:34
Liverpool - Arsenal
Nú styttist í það. Liverpool - Arsenal kl. 17:10 í dag laugardag. Get hreinlega ekki beðið eftir þessum leik. Það er nú bara samt þannig að ég er alltaf hálf smeikur fyrir leiki Liverpool. Veit ekki hvað það er. Stundum hef ég trölla trú á mínum mönnum en svo koma tímar þar sem ég missi alla þolinmæði og bövla þeim til helvítis og vill þeim allt illt. Þá fær maður það yfirleitt allt í andlitið, stórsigur og maður þarf að éta allt ofan í sig. En samt sem áður þá get ég ekki beðið. Hef í augnablikinu fulla trú á mínum mönnum.....gæti að vísu snögglega breyst.
En innst inni styður maður alltaf sína menn. Er til að mynda að fara til Liverpool 2. febrúar að sjá stórleik og derbyslag Liverpool - Everton. Menn segja að þetta sé sá stærsti á leiktíðinni. Hef áður séð á Anfield Liverpool spila við Man.Utd. þar sem mínir menn unnu 2-0. Einnig sá ég mína sigra Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildarinnar 2005 þegar Liverpool varð Evrópumeistari, en þeim leik lauk með eitt núll sigri Liverpool, þar sem Garcia skoraði stórglæsilegt mark :) Ekki slæmir leikir en sagt er að derbyleikirnir séu þeir skemmtilegusu. Vona að það sé svo.
En nóg um það....nú er komið að stórsigri Liverpool á Arsenal!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2007 | 01:15
2007
Jæja, þá er komið nýtt ár...að vísu fyrir nokkrum dögum. Á nýju ári koma ný tækifæri. Það hljóta því að vera ný tækifæri á þessu ári rétt eins og á því síðasta, þar á undan o.s.frv.
Árið 2007 fer af stað á fullri ferð. Í þeim heimi sem ég lifi í er nóg að gerast. FJölmiðlar koma og fjölmiðlar fara. DV hefur fengið "nýja" og nýja eigendur og mér sýnist við fyrstu sýn að eitthvað sé að gerast. Var ekki frá því nema að það hafi verið einhver ferskur blær á blaðinu sem kom út í gær, föstudag. sme segist vita hvað hann og hans fólk vilji, efast ekki um það. Það er mikilvægt í hvers kyns útgáfu að vita hvert ferðinni er haldið og halda þá ferð út. Ekki tapa áttum, halda þangað sem stefnt er að í upphafi og ekki láta skammtímasjónarmið lúta fyrir langtímasjónarmiðum.
Á nýju ári eiga sjálfsagt fleiri fjölmiðlar eftir að koma og jafnvel en fleiri eftir að fara. En með nýju ári koma ný tækifæri og því eigum við eftir að sjá margt skemmtilegt á árinu sem gengið er í garð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.12.2006 | 00:08
Bloggið og jólaskapið
Nú er ég búin að vera blogga í viku :) Ég er hins vegar ekki nógu seigur á þetta kerfi þar sem ég er nokkru sinnum búin að missa út af síðunni blogg og einhverra hluta vegna finnst það ekki aftur. Vona að ég verði betri með tímanum.
En þar sem ég er á fullu að koma mér í jólaskap þá ætla ég að halda því áfram. Einn þáttur í því er að horfa á Christmas Vacation með Chevy Chase sem er komin í tækið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2006 | 19:40
Loksins loksins
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2006 | 00:25
Skröggur
Merkilegt hvað maður getur verið einfaldur. Það eru bara þrír dagar til jóla, en mér finnst eins að það sé mun lengra. Hvað á maður eftir að gera? Fullt! eða það held ég allavegana, hef í það minnsta ekki gert mjög mikið fyrir utan það að saga jólatréð. Ég sem hélt ég væri svo mikið jólabarn. Er einhvernvegin að komast að því núna að ég er ekki þetta jólabarn. Ætla alltaf að baka fimm sortir af smákökum og taka allan jólapakkan á þetta....virðist einhverja hluta vegna aldrei gerast. Kemur mér samt alltaf jafn mikið á óvart. Veit ekki hvort þetta sé vegna vinnu eða einhverju öðru. Þurfti ekki nema að sjá niðurteljaran á síðunni hérna til að fatta að það væru einungis þessir þrír dagar til jóla. Spurning um að fara gera eitthvað.....jafnvel koma sér í gírinn. Ekki viljum við fara í jólaköttinn eða vera Skröggur þessi jólin, því ég held að ég hafi komið ágætlega út úr jólunum undanfarin ár..............eða hvað?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.12.2006 | 20:48
Jólatré - getur verið hausverkur!
Það getur verið mikið mál að velja jólatré. Ég man eftir því þegar ég var lítill að það gekk allt út á það að hafa sem stærsta og flottasta jólatréð.
Ég fór í Blómaval í vikunni og keypti svaka fínt tré. Í gærkvöldi var svo gripurinn tekinn inn í stofu. Þetta er kannski ekki til frásögu færandi, nema það að ég virðist hafa keypt tré sem var 10 númerum of stórt fyrir mína litlu en annars notarlegu stofu. Stóð ég mig að verki sagandi hluta af trénu til þess eins að það myndi nú passa inn til mín. Eftir mikla baráttu við tréð kom að því að ég varð......allt að því sáttur við útlit þess og stærð. Þá tók ekki skemmtilegri hlutur við; jólaserían á tréð. Það getur verið hausverkur út á fyrir sig. Ég sem hélt ég væri mjög góður í að setja seríu á tré. Var einmitt að segja vini mínum í vikunni hvað ég væri góður í þessu og um leið að setja út á hans tré! Nema hvað, eftir nokkrar tilraunir náðust sáttir milli trésins og seríunnar. Í framhaldi af því var tréið skreytt og ég held að eftir að kúlur og skraut hafi bæst á tréð, séu allir sáttir.
En ég held að á næstu jólum komi ég til með að hugsa smátt þegar farið verður í að kaupa jólatré, sem og jafnvel biðji vin minn um að setja seríuna á.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2006 | 23:15
Kastljós
Nú er komið svar frá Guðmundi Jónsyni í Byrginu. Að mínu mati svaraði hann ágætlega fyrir sig, með tilliti til þess að hann fékk svæsna útreið í Kompásþætti Stöðvar 2 á sunnudag. En að sama skapi komu upp nýjar spurningar. Spurningar sem setja fréttastofu Stöðvar 2 í bobba og gera hana ótrúverðuga á vissan hátt. Vonandi skýrist allt þetta mál fyrr en seinna.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Bækur
Tenglar
Ég tékka á:


belle
hvalur
730
olafurfa
hrannarb